Þá er það ákveðið!
28. september 2006 klukkan 02:29
Þá er það ákveðið!
Ég er að fara að flytja. Var búin að vera að velta því fyrir mér þar sem ég er borga að minnsta kosti helmingi meira fyrir mitt herbergi en allir aðrir sem ég hef talað við svo ég dreif í þessu um helgina. Var búin að vera skoða þessa síðu á netinu þar allir voru að auglýsa og sá þar auglýsingu sem mér leist vel á og fór að skoða.
Konan/stelpan sem á íbúðina er 31 árs með 2 mánaða gamla stelpu og vantaði meðleigjanda. Þeir sem þekkja mig vita að ég kikknaði í hnjánum þegar ég sá barnið sem brosti sínu blíðasta og hjalaði allan tímann. Mamman er annars ný flutt aftur til Spánar eftir að hafa búið í London í nokkur ár, ferðast í nokkur ár, búið í Þýskaladi í nokkur ár og er gift og fráskilin. Hún er argentísk listakona og hún virkaði afskaplega vel á mig svona við fyrsta hitting. Herbergið mitt er nokkuð frá hennar og ég er með sér baðherbergi sem er frábært.
Þessi íbúð er líka nær skólanum en þar sem ég er núna svo ég þarf ekki að taka metro lengur heldur ætla ég bara að fá mér hjól, sem er bæði umhverfisvænna og heilsusamlegra.
Ég flyt 12. okt og ég get ekki beðið!
Annars er ekki mikið að frétta en hægt og sígandi er alltaf meira og meira að gera í skólanum. Ég er að reyna að vera svoldið dugleg að læra og svona en það er stundum svoldið erfitt þar sem að heilinn er algjörlega í köku eftir að hafa reynt að innbyrgða öll nýju orðin og skilja allt sem sagt er. Er búin að vera hrikalega þreytt núna og ekki bætir að ég er búin að eiga frekar erfitt með að sofa svo ef einhver kann góð ráð við andvöku og svefnleysi endilega hafið samband!!!
gerið það nú fyrir mig að commenta
later

Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir
Engin athugasemd
Engin athugasemd