Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Atburðarteljari

Innskráningar kubbur

Náttföt og Ikea

30. janúar 2007 klukkan 16:54
Fór í Ikea í gær með Jamie. Alltaf svoldið notalegt að koma þangað, svona eins og lítil Skandinavía alveg sama hvar þú ert í heiminum. Var semsagt í leiðangri að finna ér nýja dýnu eða rúm þar sem mín er alveg ómöguleg. Þegar ég loksins fékk hjálp hjá Ikea manninum og var búin að leggjast á allar dýnurnar þarna gat maðurinn bablað því út úr sér að ef ég kæmi á miðvikudaginn þá fengi ég allt upp í helmings afslátt af dýnum og rúmum, ef ég mæti í náffötum það er að segja. Fyrst hélt ég að ég hefði bara heyrt eitthvað vitlaust en neinei ef ég kem í náttfötum þá fæ ég þetta allt saman á 50% afslætti.
Ég hef nú ekki mikið verið að láta náttfötin stoppa mig hingað til, hef reyndar ekki gert mikið að því hérna úti að fara út á Náttfötunum en heima finnst mér ekkert sjálfsagðara svo ég er að fara í Ikea á morgun í náttfötunum. og hana nú!
Annars allt gott að frétta, búin að gera herbergið mitt afar notalegt með allskonar Ikea-koma dóti fyrir-hillum og svona og núna þarf ég bara að finna mér hjól, hægara sagt en gert skal ég segja ykkur.
Hasta pronto!
Ragnheiður Sylvía

Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir
1 athugasemd

Komin

27. janúar 2007 klukkan 17:48
Komin og finnst eins og ég hafi bara aldrei farið heim, mjög notaleg tilfinning svona eftir að finnast svoldið erfitt að fara frá mömmu sinni og pabba. Hérna er bara allt eins og áður nema nokkrum gráðum kaldara en við var að búast. Það er eiginlega bara frekar mikið kalt hérna en samt sól í heiði sem gerir þetta aðeins betra. Inka er búin að stækka alveg helling og blaðrar út í eitt núna, barnið hættir ekki að tala og er búin að þróa með sér hin ótrúlegustu hljóð. Nauel er bara að reyna að finna sér vinnu og það er semsagt komið á hreint að ég get ekki passað Inku á morgnanna þar sem skólinn hjá mér getur í seinasta lagi byrjað 12 en það er alveg augljóst að vinnumarkaðurinn hérna er ekki gerður fyrir einstæðar mæður...
Ætlum að skella okkur í bíó í kvöld á Babel þar sem að Will(barnsfaðirinn) er í heimsókn, afskaplega notalegt allt saman.
Er að leyta mér að hjóli núna þar sem mér finnst ekkert leiðinlegra en að taka metró, labbaði Barcelona þvera og endilanga í gær til að finna hjólabúð sem ég hef oft farið í en af einhverri ástæðu fann ég ekki andskotans hjólabúðina. Var að verða brjáluð þegar ég var búin að snúast í hringi á sama svæðinu í svona 2 1/2 tíma! Þar eiginlega líka að fara í Ikea en er ekki alveg að nenna því, af því Ikea er svo stór að það tekur alveg 2-3 tíma bara að labba í gegn um allt heila klabbið.
Þangað til næst
Ragnheiður Sylvía
Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir
1 athugasemd

Barcelona otra vez!

25. janúar 2007 klukkan 04:15
Þá er komið að því að fara aftur út til Barcelona. Þó svo ég sé búin að bíða eftir því í doldin tíma finnst mér alveg erfitt að fara úr dekrinu hérna heima og fara að sjá um mig sjálf. Ekki miskilja mig, mér finnst best í heimi að sjá um mig sjálf en þetta er bara svo rosalega notalegt hérna hjá mömmu sinni í nýja húsinu með bókunum mínu og öllu saman. Hlakka nú samt líka til að hitta Nauel og Inku aftur og heyra allar þeirra sögur og síðan er ég víst komin með nýjan meðleigjanda. Stelpa frá Swiss sem ég veit ekkert meira um nema það að Nauel þurfti á peningunum að halda svo hún kom í hennar herbergi. Verð ekki lengi að koma mér vel fyrir aftur, þarf bara að byrja að komast í rútínu og þá er þetta í lagi. Hef líka ákveðið að reyna að ferðast aðeins meira en ég hef gert hingað til. Langar að fara til bilbao og líka í heimsókn til guggýar og Veronicu til Amsterdam, fleiri áfangastaðar ekki ákveðnir, er opin fyrir öllum uppástungum. Annars er ég líka búin að komast að því að það á ábyggilega enginn eftir að koma í heimsókn nema kannski mamma og pabbi... sem mér finnst svoldið leiðinlegt en þá verð ég bara að vera duglegri að snattast hitt og þetta. Farin að lúlla, næsta færsla ala Barcelona!
Hasta pronto!
Ragnheiður Sylvía
Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir
2 athugasemdir